Það er ekki oft sem Fræðslumiðstöðin býður upp á tómstundanámskeið þar sem kennt er á öðrum tungumálum en íslensku en í næstu viku verður boðið upp á tvö námskeið með pólskum leiðbeinanda. Annars vegar prjónanámskeið og hins vegar námskeið í hekli.
Meira
- miðvikudagurinn 2. apríl 2014
- Dagný Sveinbjörnsdóttir
Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður í Bolungarvík, Ísafirði og Súðavík mánudaginn 7. apríl − miðvikudagsins 9. apríl 2014.
Björn mun heimsækja vinnustaði og vera með einstaklingsviðtöl.
Einstaklingsviðtölin eru tilvalin fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína og möguleika. Svo sem;
- Fá upplýsingar um nám.
- Fá upplýsingar um styrki til náms.
- Setja sér markmið í námi og starfi.
- Kanna færni sína í starfi og fá upplýsingar um raunfærnimat.
- Taka áhugasviðspróf.
- Rækta sjálfan sig.
Ráðgjöfin er fólki að kostnaðarlausu.
Gríptu tækifærið og skráðu þig hjá Birni í síma 899 0883, eða hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025 eða með tölvupósti frmst@frmst.is.
- þriðjudagurinn 1. apríl 2014
-