Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Spennandi námskeið í mars

Í mars er kennir ýmissa grasa hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. 

Fyrir fólk í atvinnulífinu má benda á námskeið í grunnatriðum verkefnastjórnunar og námskeið um bókhald og virðisaukaskatt.

Þeir sem vilja bæta við tungumálakunnáttuna geta kynnt sér ítölsku fyrir byrjendur og fyrir þá sem vilja leggja áherslu á sál og líkama má benda á námskeið í Qi Gong og námskeið um LKL matreiðslu.

Þeir sem hafa fengið sér tölvu eftir að Windows 8 kom til sögunnar geta fengið stutt námskeið sem snýr að því og á Patreksfirði er boðið upp á almennt tölvunám.

Fyrir áhugafólk um hannyrðir er áhugavert að skoða námskeið í vefnaði.

Þá býður Rauði krossinn upp á frítt námskeið í sálrænum stuðningi.

Loks má nefna að Endurmenntun HÍ ætlar nýta fjarfundabúnað Fræðslumiðstöðvarinnar til að kenna námskeið sem vekur örugglega áhuga margra en það kallast „Kjaftað um kynlíf við börn og unglinga“.

Athugið að skráning á það námskeið fer fram á endurmenntun.is eða í síma 525 4444 en skráning á önnur námskeið er hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. 

Útskrift úr námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum

Hluti af hópnum sem tók þátt í námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum ásamt starfsmönnum Fræðslumiðstöðvarinnar.
Hluti af hópnum sem tók þátt í námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum ásamt starfsmönnum Fræðslumiðstöðvarinnar.

Föstudaginn 28. febrúar s.l. var úrskrift úr námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám sem kennt er samkvæmt námsskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Fræðslumiðstöð Vestfjarða óskar nemendum til hamingju með að hafa lokið þessum áfanga og vonar að þetta verði þeim hvatning til frekara náms af einhverju tagi.


Meira
Eldri færslur