Hér í Fræðslumiðstöð Vestfjarða er undirbúningur fyrir komandi vetur í fullum gangi. Námsvísir okkar kemur út í lok ágúst og þar verður að finna upplýsingar um stóran hluta þeirra námskeiða sem við bjóðum í vetur. Við viljum gjarnan heyra frá fólki hvers konar námskeið það vill sjá og einnig fá að vita af því ef fólk hefur áhuga á að kenna einhver námskeið.
Meira
- föstudagurinn 7. ágúst 2015
- Dagný Sveinbjörnsdóttir
Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur nú opnað aftur eftir sumarleyfi og starfsfólkið er komið til vinnu.
Nú er verið að undirbúa útgáfu námsvísis fyrir veturinn 2015 – 2016 og munu námskeiðin tínast inn á vefinn á næstunni. Námsvísirinn kemur svo út um mánaðamótin ágúst/september.
Okkur finnst ágætt að vera komin aftur í rútínuna; getað fengið sér kaffi og átt notalegt spjall við samstarfsfólk og gesti og dundað aðeins í tölvunni á milli.
- miðvikudagurinn 5. ágúst 2015
-