Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Hvað viltu læra - eða kannski kenna?

Hér í Fræðslumiðstöð Vestfjarða er undirbúningur fyrir komandi vetur í fullum gangi. Námsvísir okkar kemur út í lok ágúst og þar verður að finna upplýsingar um stóran hluta þeirra námskeiða sem við bjóðum í vetur. 

Eins og alltaf erum við hjá Fræðslumiðstöðinni opin fyrir öllum góðum hugmyndum hvað varðar námskeið eða námsleiðir. Við viljum því hvetja fólk til að láta okkur vita hvers konar námskeið það vill sjá hjá okkur í vetur.

Einnig viljum við gjarnan heyra frá fólki sem langar að deila þekkingu sinni og kunnáttu með öðrum og hugsanlega kenna á námskeiðum hjá Fræðslumiðstöðinni. Þetta gætu verið námskeið í tungumálum, tölvum, samfélagsmiðlum, ferðamálum, tómstundum, vinnumarkaðstengd námskeið og svo framvegis.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er ekki með fastráðna kennara heldur aðeins stundakennara. Því stærri sem kennarahópurinn er, því fjölbreyttari námskeið getum við boðið uppá.

Deila