Menntastoðir og Sjósókn í fjarkennslu
Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir Háskólabrú Keilis, Háskólagátt Háskólans á Bifröst og frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík. Sjósókn undirbýr sjómenn séstaklega undir frekara nám.
Meira
Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir Háskólabrú Keilis, Háskólagátt Háskólans á Bifröst og frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík. Sjósókn undirbýr sjómenn séstaklega undir frekara nám.
Fræðslumiðstöð Vestfjarða stendur fyrir raunfærnimati á námsbrautum félagsliða-, leikskólaliða- og stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Að loknu raunfærnimati getur fólk hafið nám á viðkomandi braut við einhverja þá fræðslustofnun sem býður slíkt nám. Einnig er hægt að gangast undir raunfærnimat eftir að nám er hafið.
Í tengslum við raunfærnimatið býður svo Fræðslumiðstöðin nám á leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú í samstarfi við SÍMEY á Akureyri og Farskólann á Norðurlandi vestra, sjá hér.
Til viðbótar við raunfærnimat á ofangreindum námsbrautum hefur Fræðslumiðstöðin fengið fjárveitingu til að aðstoða fólk við að komast í raunfærnimat í öðrum greinum. Þá starfar miðstöðin með öðrum fræðsluaðilum, einkum IÐUNNI fræðslusetri.
Með raunfærnimati getur fólk fengið þekkingu og færni sem það hefur aflað sér á vinnumarkaðinum metna jafngilda áföngum í skólum og stytt þannig nám sitt.
Inntökuskilyrði í raunfærnimat eru aðeins mismunandi eftir greinum, en lágmarksaldur er yfirleitt 22 – 25 ár, starfstími í greininni 3 – 5 ár og stundum er krafist að viðkomandi hafi lokið um 240 kennslustundum í starfstengdu námi.
Ferli raunfærnimats
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025, eða með tölvupósti, smari@frmst.is.
Endilega kannið stöðu ykkar.