Tæknistoðir í fjarkennslu
Tæknistoðir eru 665 kennslustunda nám einkum ætlaðar þeim sem hafa reynslu úr atvinnulífinu og eru að minnsta kosti 23 ára, eru á vinnumarkaði og hafa hug á að ná sér í löggild starfstengd réttindi í bíl-, málm- og byggingartæknigreinum.
Tæknistoðir verða kenndar af Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi og voru þróaðar af miðstöðinni innan
átaksverkefnisins Menntun núna í Norðvesturkjördæmi, í samstarfi við alla framhaldsskóla kjördæmisins.
Tæknistoðir verða kenndar í dreifnámi í gegnum Moodle. Stór hluti námsins fer fram í gegnum Internetið, auk þess verða haldnar staðlotur þar sem nemendur koma saman, hitta leiðbeinendur og samnemendur. Kennsluaðferðir verða fjölbreyttar, kennt verður á hæfilegum hraða og með góðum stuðningi við nemendur. Tæknistoðir verða metnar inn í iðnnámi. Þær eru því frábær leið fyrir þá sem vilja byrja á tækninámi í sinni heimabyggð og tilvalið nám með vinnu.
Staðlotur verða í Borgarnesi.
Fyrsta lotan byrjar föstudaginn 02.10 frá klukkan 10:00-16:00 og laugardaginn 03.10 frá klukkan 9:00-16:00.
Önnur lota verður laugardaginn 17.10 frá klukkan 9:00-16:00.
Námsmat verður gefið með einkunnum þar sem metin verða verkefni, próf og ástundun.
Námsþættir:
- Kynning, mat, námstækni og skipulag 30 kest.
- Öryggis og félagsmál 60 kest.
- Upplýsingartækni fyrir tækninám 120 kest.
- Grunnteikning 1-2 240 kest.
- Efnisfræði grunnnáms 60 kest.
- CNC Tölvustýrðar iðnaðarvélar 90 kest.
- Iðnreikningur 60 kest.
- Námsmat 5 kest.
Samtals 665 kennslustundir
Nánari lýsing á námsþáttum er hér.
Ef þú hefur reynslu úr atvinnulífinu og hefur áhuga á að afla þér iðnréttinda
og vilt vita meira hafðu þá samband við Símenntunarmiðstöðina á Vesturlandi í síma 437 2390
eða Hörð Baldvinsson verkefnastjóra í síma 841 7710 eða sendu honum póst á hordur@simenntun.is.
Skráningar eru hjá Svövu Svavarsdóttur eða Herði Baldvinssyni.