Mánudaginn 20. apríl kl. 20:00 verður haldin almennur kynningarfundur um raunfærnimat í húsakynnum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarðar að Suðurgötu 12 Ísafirði. Hægt er að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað í Þekkingarsetrinu Skor á Patreksfirði og í Hnyðju á Hólmavík.
Raunfærnimat er ætlað fólki sem hefur hug á að fara í nám og vill fá metna þá færni og þekkingu sem það hefur öðlast í starfi og/eða frítíma og geta þannig hugsanlega stytt nám. Að loknu raunfærnimati geta þátttakendur farið í skóla og lokið því námi sem eftir stendur til að útskrifast.
Á þessum kynningafundi mun Iðan – fræðslusetur kynna raunfærnimat í iðngreinum og Björn Hafberg náms– og starfsráðgjafi Fræðslumiðstöðvarinar fjalla um hvaða aðrar greinar eru í boði. Sérstaklega verður horft til raunfærnimats á félagsliðabraut, leikskólaliðabraut og á móti námi fyrir þá sem vilja vera stuðningsfulltrúa í grunnskóla.
- miðvikudagurinn 15. apríl 2015
- Dagný Sveinbjörnsdóttir
Hópurinn sem útskrifaðist.
Í gær þann 9. apríl 2015 útskrifuðust 7 konur úr raunfærnimati í matartækni. Raunfærnimat er mat á þeirri reynslu og þekkingu sem viðkomandi hefur aflað sér á vinnumarkaði og getur verið möguleg stytting á námi. Metið er á móti námskrá í viðkomandi fagi sem að þessu sinni var matartækni. Matið fór fram bæði í skólaþætti og vinnustaðaþætti námsins.
Nám í matartækni er 140 einingar, þar af eru 80 einingar í vinnustaðanámi. Fræðslumiðstöð Vestfjarða vann verkefnið í samvinnu við IÐUNA fræðslusetur í Reykjavík. Matsaðilar í raunfærnimatinu voru Margrét Sigurbjörnsdóttir kennari við Menntaskólann í Kópavogi og Olga Gunnarsdóttir sem vinnur á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Að hálfu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða sá Sigurborg Þorkelsdóttir verkefnastjóri um utanumhald og undirbúning, ásamt Birni Hafberg náms- og starfsráðgjafa sem fór með þátttakendum yfir gátlista. Verkefninu stjórnaði Edda Jóhannesdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá IÐUNNI.
Óhætt er að segja að konurnar hafi staðið sig vel og fengið mjög gott mat enda reynslumiklar í sínu sviði sem er að sjá um matargerð hjá fyrirtækjum eða skólastofnunum.
Í framhaldinu mun Menntaskólinn á Ísafirði sjá um að kenna það sem upp á vantar til að ljúka námi í matartækni í samvinnu við Menntaskólann í Kópavogi og Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Námið er opið öllum sem hug hafa á að mennta sig á þessu sviði. Sjá nánar um námið hér
- föstudagurinn 10. apríl 2015
-