Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Hraðlestrarnámskeið

Jón Vigfús Bjarnason skólastjóri Hraðlestarskólans
Jón Vigfús Bjarnason skólastjóri Hraðlestarskólans

Þriggja vikna fjarnámskeið – Námskeiðið er frá Hraðlestrarskólanum í samstarfi Námsflokka Hafnarfjarðar og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Námskeiðið í fjarnámi og ætluð þeim sem vilja ná góðu valdi á hraðlestrartækninni með skjótum hætti. Frábær lausn þegar stutt er í próf, skil á stórum verkefnum eða bara þegar lítill tími er til stefnu. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans.

Fyrirkomulag: Hópurinn hittist einu sinni í viku, á sama vikudegi og námskeiðið hefst. Farið er í ýmsar tækniæfingar sem ætlað er að þjálfa hraðlestrartæknina og kennari fer síðan í gegnum efni er tengist hraðlestri, námstækni, glósutækni og annað efni sem tengist lestri almennt. Nemendur fá ítarleg kennslugögn afhent og opnað verður fyrir aðgang að nemendavef Hraðlestrarskólans. Nokkrum dögum seinna er síðan opinn veffundur í gegnum Google Hangout þar sem nemendur fá svör við spurningum vikunnar.

Hentar fyrir alla. Hentar sérstaklega fyrir námsmenn en líka fyrir fólk í atvinnulífinu eða þá sem þurfa eða vilja almennt lesa mikið.

Kennsluform:

  • Kennt einu sinni í viku
  • Kennt í fjarnámi í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjaða
  • Um 3 klukkustundir í senn
  • Aðgangur að 6 vikna fjarnámskeiði fylgir frítt með

Heimanám: Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum.

Algengur árangur: Tvöföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 20-25% aukning á skilningi. Hámarksárangur á lágmarkstíma.

Árangursábyrgð. 36 mánaða ánægjuábyrgð og æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans og tryggir þér rétt til að sitja námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri.

Kennslutímar: 11. apríl, 18. apríl og 25. apríl, kl. 19 - 22.

Verð. Almennt verð er 51.500 kr., en verð til námsmenn 34.500 kr.

Innifalið í námskeiðsgjaldi.

  • Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum
  • Mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. vikulegir tímar fyrir fyrirspurnir á Google Hangout og aðstoð í gegnum síma og netfang)
  • Aðgangur í gegnum nemendavef Hraðlestrarskólans – www.h.is/nemendur – að gögnum, glærum og æfingum á netinu
  • Aðgangur að 6 vikna fjarnámskeiði á kennsluvef Hraðlestrarskólans – www.h.is/6viknafjarnamskeid
  • Aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur,
  • Árangursábyrgð, 36 mánaða ánægjuábyrgð og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á

Umsagnir nemenda á www.h.is/umsagnir

 

Skráning og greiðslugátt hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar: http://www.nhms.is/namskeidin/hradlestur/

Á döfinni

Það er ýmislegt á döfinni hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða núna eftir páskana, tómstundir, tölvur, sjálfsefling og námskeið sem geta nýst í starfi. 

Hugræn atferlismeðferð (HAM). Hefst 4. apríl.

Excel - morgunnámskeið. Hefst 5. apríl.

Útsaumur. Haldið 6. apríl.

Spænska - talmál. Hefst 6. apríl.

iPad og iPhone. Hefst 11. apríl.

Samskiptaræktin. Hefst 12. apríl.

Raki og mygla í húsum II. Haldið 14. apríl.

Fleiri námskeið eru væntanleg, svo sem nokkur námskeið fyrir fólk í ferðaþjónustu, vinnustofa um núvitund, fyrirlestur í fyrirlestraröðinni um þriðja skeiðið og skyndihjálparnámskeið kennt á ensku.

Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um að lágmarks þátttaka fáist.

Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Skráningarfrestur á námskeið er yfirleitt 3-7 virkir dagar áður en á námskeið á að hefjast.

Allar frekari upplýsingar og skráning í síma: 456-5025 og á vef Fræðslumiðstöðvar www.frmst.is.

 

Eldri færslur