Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Viltu bæta þig í íslensku, stærðfræði eða upplýsingatækni?

Fræðslumiðstöðin í samstarfi við Menntaskólann á Ísafirði og Fisktækniskólann hóf í haust að bjóða upp á grunnáfanga í bóklegum greinum sem nýtast í námi í fisktækni eða sem undirbúningur fyrir nám í framhaldsskóla.  Á vorönn er kennd íslenska, stærðfræði og upplýsingatækni.

Ef þú hefur áhuga á að bætast í hópinn endilega hafðu sem fyrst samband við Helgu Konráðsdóttur, náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslumiðstöðinni, sími 456 5025 eða helga@frmst.is.

 

Góður gangur í íslenskukennslu

Síðasta íslenskunámskeiði ársins 2019 lokið. Nemendurnir tóku sig saman og buðu upp á veitingar.
Síðasta íslenskunámskeiði ársins 2019 lokið. Nemendurnir tóku sig saman og buðu upp á veitingar.

Vel hefur gengið með námskeið í íslensku fyrir útlendinga hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á þessu ári sem senn er að líða. Alls voru haldin 28 námskeið hjá miðstöðinni, flest á Ísafirði en einnig á Hólmavík og Drangsnesi, Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal, Bolungarvík, Þingeyri og Suðureyri auk nokkurra fjarkenndra námskeiða. Fræðslumiðstöðin vill þakka nemendum fyrir góða ástundun og einnig fyrirtækjum á svæðinu fyrir að hvetja sitt fólk til þess að sækja námskeið. Íslenskunámskeiðin byrja aftur í janúar. Vonandi verða Vestfirðingar sem eiga annað móðurmál en íslensku jafn duglegir að sækja nám á nýju ári því íslenskukunnátta er jú einn af mikilvægum þáttum þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu.

Bestu jólakveðjur.

Kennarar og starfsfólk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Eldri færslur