Tilfinningar og líðan
Helena Jónsdóttir sálfræðingur fjallar um auðveldar leiðir til að auka vellíðan í daglegu lífi og starfi. Fyrirlesturinn verður haldinn, í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Suðurgötu 12 Ísafirði, fimmtudaginn 21. nóvember kl 16:30-17:30. Allir velkomnir og frítt inn.
Fyrirlestrinum er streymt hér
- fimmtudagurinn 21. nóvember 2019
- Sólveig Bessa Magnúsdóttir
Vekjum aftur athygli á þeim námskeiðum sem starfsmenntasjóðir ákveðinna stéttarfélaga greiða fyrir sína félagsmenn. Fólk sem á aðild að þeim sjóðum getur sótt þessi námskeið sér að kostnaðarlausu.
Námskeið sem félagar í Sameyki (áður SFR) geta sótt frítt:
Námskeið sem félagar í FosVest geta sótt frítt (ath á ekki við um starfsfólk Orkubús Vestfjarða):
Athugið að þeir sem vilja nýta sér þetta þurfa að skrá sig á vef Starfsmenntar, smennt.is en ekki hér á vef Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeið sem starfsmenn sveitarfélaga og ríkis sem eru í VerkVest eða Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur geta sótt frítt:
- Öll tungumálanámskeið Öll námskeið sem geta talist starfstengd, t.d. tölvunámskeið
- Hvað telst starfstengt námskeið er sameiginlegt mat starfsmanns og yfirmanns og metið hverju sinni.
Eftir sem áður endurgreiða allir starfsmenntasjóðir hluta þátttökugjalda á önnur námskeið en viðmið og reglur hvers sjóðs eru þó mismunandi. Allir sem eru á vinnumarkaði eru eindregið hvattir til að kynna sér hvaða rétt þeir hafa til endurgreiðslu og nýta sér hann.
- fimmtudagurinn 31. október 2019
- Dagný Sveinbjörnsdóttir