Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Torf- og grjóthleðsla - námskeið hjá Endurmenntun Lbhí

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir námskeiði um torf- og grjóthleðslu í Breiðuvík 19. og 20. september n.k.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að byggja úr torfi og grjóti, hvort sem um ræðir veggi, kartöflukofa eða önnur smærri mannvirki.

Þátttakendur fá innsýn inn í íslenska byggingararfleið og kynnast verklagi við byggingu úr hefðbundnu íslensku efni. Fjallað verður um íslenska torfbæinn, uppbyggingu hans, efnisval og framkvæmd. Einnig verður fjallað um hleðslu frístandandi veggja og stoðveggja úr torfi og grjóti.

Lögð er áhersla á verklega kennslu. Endurhlaðinn verður veggur ofl. á námskeiðinu.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Kennari: Guðjón Kristinsson torf- og grjóthleðslumeistari, skrúðgarðyrkjumaður og stundarkennari við LbhÍ.

Tími (ný dagsetning): Fös. 19. sept, kl. 9:00-17:00 og lau. 20. sept 9:00-16:00 í  Breiðavík Vesturbyggð (18 kennslustundir).

Skráning er hjá Endurmenntun Lbhi, www.lbhi.is/namskeid

Skráningarfrestur er til 10. sept.

Verð: 33.000 kr. (Fæði og gögn innifalin í verði) (gisting fyrir þá er þurfa).

Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Náms- og starfsráðgjafi á svæðinu

Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður á norðanverðum Vestfjörðum frá og með mánudeginum 11. ágúst og eitthvað fram eftir vikunni.

Björn mun heimsækja vinnustaði og vera með einstaklingsviðtöl.

Einstaklingsviðtölin eru tilvalin fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína og möguleika, svo sem;

  • Fá upplýsingar um nám.
  • Fá upplýsingar um styrki til náms.
  • Setja sér markmið í námi og starfi.
  • Kanna færni sína í starfi og fá upplýsingar um raunfærnimat.
  • Taka áhugasviðspróf.
  • Rækta sjálfan sig.

Ráðgjöfin er fólki að kostnaðarlausu.

Gríptu tækifærið og skráðu þig hjá Birni í síma 899 0883, eða hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025 eða með tölvupósti smari@frmst.is

Heimsókn Björns Hafbergs eru fyrstu merki þess að Fræðslumiðstöðin hefur opnað að ný að loknu sumarleyfi. Nú er unnið að námsvísi næsta vetrar, sem vonandi kemur út í byrjun september.

Eldri færslur