Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Góður gangur í íslenskunámi

Nemendur á námskeiði í íslensku á Bíldudal.
Nemendur á námskeiði í íslensku á Bíldudal.

Það hefur verið góð aðsókn að námskeiðum í íslensku fyrir útlendinga hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða það sem af er þessu haust. Íslenskan er kennd samkvæmt námsskrá frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og er skipt á fjögur stig þar sem gert er ráð fyrir 60 kennslustundum á hverju stigi. Fræðslumiðstöðin hefur farið þá leið að skipta hverju stigi á tvö námskeið, 30 kennslustundir hvort.


Meira

Kynning á raunfærnimati fyrir félagsliða, leikskólaliða og stuðningsfulltrúa í grunnskólum

Nú á haustönn býður Fræðslumiðstöð Vestfjarða upp á raunfærnimat fyrir þá sem vija verða félagsliðar, leikskólaliðar eða stuðningsfulltrúar í grunnskóla. Raunfærnimat er mat á þeirri færni og þekkingu í faginu sem fólk hefur aflað sér í gegnum starf og getur stytt nám á þessu sviði.

Þátttakendur þurfa að hafa náð 25 ár aldri. Þátttakendur í raunfærnimati fyrir félagsliða þurfa að hafa að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu með fötluðum, öldruðum eða sjúkum og þátttakendur í raunfærnimati fyrir leikskólaliða eða stuðningsfullrúa þurfa að hafa starfað að minnsta kosti þrjú ár með börnum í leikskóla eða grunnskóla.

Kynningarfundur verður haldinn í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði, þriðjudaginn 20. október kl. 17. Áhugasamir eru hvattir til að koma og kynna sér málið.

Eldri færslur