Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarf við Hagvang

Samstarfið innsiglað með handabandi.
Samstarfið innsiglað með handabandi.

Föstudaginn 10. febrúar s.l. var undirritaður samstarfssamningur milli Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Hagvangs ehf.

Með samninginum lýsa aðilar vilja sínum til nánara samstarfs um þjónustu við fyrirtæki og stofnanir á Vestfjörðum. Fræðslumiðstöðin hefur boðið aðstoð við greiningu fræðsluþarfa og gerð fræðsluáætlana og Hagvangur hefur verið að hasla sér völl við margskonar ráðgjöf og þjálfun.

Vilji samningsaðila er að efla markaðsstarf sitt á Vestfjörðum og bjóða fyrirtækjum og stofnunum meiri og betri þjónustu.

Á meðfylgjandi mynd innsigla þau Katrín S. Óladóttir framkvæmdastjóri Hagvangs og Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða samstarfið með handabandi. Í baksýn eru vottar að atburðinum; þau Elfa Svanhildur Hermannsdóttir verðandi forstöðumaður Fræðslumiðstöðvarinnar og Guðjón Svansson ráðgjafi hjá Hagvangi, en þau munu bera hita og þunga af framkvæmd samningsins.

Veðurfræði - tölvuspár FRESTAÐ TIL 28.FEBRÚAR

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur

Þriðjudagskvöldið 28. febrúar (var áður auglýst 7. febrúar) verður Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur með erindi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Þar mun Einar fjalla sérstaklega um gagnsemi tölvuspáa og leiðir um frumskóg þeirra á vefnum.  Hverjar þeirra eru hentugar og hvað ber að varast í þessum efnum, ekki síst fyrir vestan.  Hversu langt fram í tímann er hægt að spá með nútímaaðferðum (spákonur, miðlar og þjóðlegir veðursjáendur eru ekki teknir með)?

Námskeiðið miðast sérstaklega við sjómenn en gagnast öllum öðrum sem hafa áhuga á efninu.

Skráning og nánari upplýsingar eru hér.

Eldri færslur