Mánudaginn 13. júní s.l. útskrifuðust 23 nemendur úr Smáskipanámi skipstjórn
Það er löng hefð fyrir smáskipanámi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða en því miður lá það niðri í um þrjú ár vegna reglugerðabreytinga og ýmissa hindrana. Um tíma var ekki ljóst hvort hægt væri að halda áfram með námið hér á svæðinu en með þrautseigju og hjálp góðra aðila tókst að útfæra það og fá tilskilin leyfi fyrir kennslunni. Kennslan í náminu var mikið til í höndum Hjalta Más Magnússonar en einnig komu kennarar hjá Tækniskólanum að kennslunni og sáu um staðlotur í hermum í Reykjavík. Aðrir kennarar voru Jóhann Bæring Gunnarsson og Nanna Bára Maríusdóttir. Sólveig Bessa Magnúsdóttir hélt utan um námið fyrir hönd Fræðslumiðstöðvarinnar.
Fræðslumiðstöðin er afar þakklát þeim sem lögðu hönd á plóg til að námið yrði að veruleika enda skiptir miklu að smáskipanám sé í boði á Vestfjörðum þar sem atvinnulíf er svo nátengt sjósókn og sjómennsku.
Fyrirhugað er að bjóða aftur upp á smáskipanám í skipstjórn í haust og þá einnig í vélstjórn en vélstjórnanámið hefur líka legið niðri um tíma.
- fimmtudagurinn 16. júní 2022
- Dagný Sveinbjörnsdóttir
Þann 15. desember útskrifuðust 10 nemendur úr Skrifstofuskólanum, námsleið frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni til að sinna almennum skrifstofustörfum. Námið er 320 klukkustunda langt og náði yfir tvær annir.
Skrifstofuskólinn var fjarkenndur í Teams og voru nemendur frá öllum Vestfjörðum. Náminu lauk með kynningum á lokaverkefnum þar sem nemendur samþættu þá færni og þekkingu sem þeir höfðu aflað sér í genum námið s.s. í word, excel, verslunarreikningi, bókhaldi og dk tölvubókhaldi. Verkefnin lutu að stofnun og rekstri fyrirtækja og fjölluðu um þvottahús, trésmíðaverkstæði, verslun og skreytingarþjónustu. Auk þeirra 10 sem kláruðu allt námi sátu fleiri námsleiðina að hluta og luku ákveðnum námsþáttum.
Fræðslumiðstöð Vestfjarða óskar þessum efnilega hóp til hamingju með útskriftina og velfarnaðar í frekara námi og störfum.
Á myndinni má sjá þá nemendur skrifstofuskólans sem luku námi og kynntu verkefni sín ásamt aðalkennara námsleiðarinnar Pálma Guðmundssyni. Umsjónarmaður námsleiðarinnar var Sólveig Bessa Magnúsdóttir.
- fimmtudagurinn 16. desember 2021
- Sólveig Bessa Magnúsdóttir