Fjórða iðnbyltingin er hafin: Fyrirlestur um áhrif nútímatækni á störf, líðan, atvinnutækifæri og atvinnuleit í evrópskri starfmenntaviku.
Í boði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Vinnumálastofnunar.
Fimmtudaginn 7. desember 2017, kl. 11:45 - 12:15 í Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Einnig verður sent út í fjarfundi á Hólmavík og Patreksfirði.
Fyrirlesari: Jóhanna Ella Jónsdóttir, sálfræðingur og mannauðsráðgjafi hjá Hugtak.
Létt hádegissnarl í boði.
Tökum þátt í starfsmenntaviku og búum okkur undir framtíðarvinnumarkaðinn!
- mánudagurinn 20. nóvember 2017
-
Markhópur
Foreldrar barna sem hafa hamlandi einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrests (ADHD) samkvæmt formlegri skimun eða fullnaðargreiningu. Efni námskeiðsins hentar best vegna barna á aldrinum 5–12 ára sem ekki hafa margar eða flóknar fylgiraskanir.
Markmið
Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og styðja þá við að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með þessa og tengdar raskanir. Foreldrar eru studdir til að skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.
Fyrirkomulag
Hvert námskeið er 12 klukkustundir sem skiptist í 6 skipti, 2 klst. í senn. Fyrstu 5 skiptin eru vikulega, þá kemur ein vika án námskeiðstíma og síðasti tíminn er í 7. viku námskeiðs. Í hverjum tíma veita leiðbeinendur fræðslu um ákveðin grundvallaratriði, studd af námskeiðsgögnum. Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Í upphafi og við lok námskeiðs eru foreldrar beðnir að fylla út matslista. Milli tíma þarf að vinna heimaverkefni sem rædd eru í næsta skipti og ráðgjöf er gefin um framhaldið.
ATH. Þar sem hver áfangi námskeiðsins byggir á því sem á undan er gengið er mikilvægt að gera ráðstafanir til að geta mætt í alla tímana. Mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.
Leiðbeinendur
Leiðbeinendur hverju sinni eru tveir fagaðilar sem eru sérfróðir um ADHD og skyldar raskanir og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.
Yfirlit innihalds
Tími 1 Einkenni og áhrif ADHD á hegðun barna og samspil þessa við umhverfið. Orsakir óhlýðni og þróun samskipta í fjölskyldum. Grunnatriði atferlismótunar.
Tími 2 Uppeldisfærni og bjargráð foreldra, lykilatriði í uppeldi barna með ADHD, að veita æskilegri hegðun athygli og nota jákvæða athygli markvisst til kennslu.
Tími 3 Daglegt skipulag, rammi, rútína og reglur. Að gefa skýr fyrirmæli og ýta undir hlýðni, góða hegðun, sjálfstæði og sjálfsaga.
Tími 4 Kynning á mismunandi umbunarkerfum; notkun, fyrirkomulag og framkvæmd. Val markhegðunar og umbunar.
Tími 5 Viðurlög við óæskilegri hegðun, mismunandi leiðir. Að taka á hegðun utan heimilis, sjá fyrir mögulega erfiðleika og skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð.
Tími 6 Skipulag til framtíðar, hvað á að gera ef hegðun barns versnar, þarf einhverju að breyta í núverandi aðgerðum? Niðurstöður matslista, ráðgjöf, endurgjöf og útskrift.
Tími og skráning
Námskeiðið verður haldið á miðvikudagskvöldum frá 19:30 – 21:30 í húsi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða Suðurgötu 12. Upplýsingar og bókanir á námskeiðið er á adhdnamskeid@gmail.com
Fyrsti tími verður fimmtudaginn 2. nóvember, og verða næstu tímar á miðvikudögum eftir það, 8.11., 15.11., 22.11., 29.11., og síðasti tíminn verður tveimur vikum síðar eða þann 13. desember.
Verð: 15000 fyrir einstætt foreldri, 20000 fyrir par/hjón. Innifalið í verði eru öll námskeiðsgögn.
- föstudagurinn 27. október 2017
-