Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Háskólanám í tæknifræði -ekki skilyrði að hafa stúdentspróf

Hægt að sækja um háskólanám í tæknifræði án þess að vera með stúdentspróf og taka fyrsta námsárið í dreifnámi. Hentar vel þeim sem hafa lokið verk- eða iðnnámi og vilja sækja hagnýtt háskólanám með mikla atvinnumöguleika.

 

Tæknifræðinám Háskóla Íslands á vegum Keilis býður upp á nýjan valmöguleika fyrir þá sem langar í háskólanám en hafa ekki lokið stúdentsprófi. Stúdentspróf er ekki inntökuskilyrði og hægt er að taka fyrsta námsárið í dreifnámi.

 

Samkvæmt nýjum inntökuskilyrðum í tæknifræðinámi Háskóla Íslands á vegum Keilis geta umsækjendur sem stundað hafa nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið stúdentsprófi fengið inntöku með því að þreyta stöðumat hjá Keili. Við mat á undanþágu er jafnframt tekið mið af starfsreynslu úr atvinnulífinu. Sömu sögu er að segja af þeim sem hafa lokið sveinsprófi og eru með starfsreynslu. Þekking hvers nemenda er metin fyrir sig. Umsækjendur sem uppfylla skilyrði um undanþágu þurfa að sitja undibúningsáfanga á haust- og vormisseri fyrsta árs.

 

Tæknifræðinámið er þriggja og hálfs árs nám til fullra starfsréttinda í tæknifræði og hentar þeim sem hafa áhuga á að læra að hanna tæknilausnir. Námið er að stórum hluta verklegt en verkleg námsaðstaða hjá Keili er til fyrirmyndar. Í náminu vinna nemendur í litlum hópum og hafa mjög gott aðgengi að kennurum.

 

Til að auðvelda fólki að hefja nám er nemendum boðið upp á dreifnám á fyrsta námsárinu. Dreifnámið er kennt sjö vikur í einu og hentar þeim sem vilja vinna samhliða námi til að byrja með og/eða þeim sem búa á landsbyggðinni og vilja ekki flytja strax á suðurhorn landsins.

 

Starfsheitið tæknifræðingur er lögverndað og tæknifræðingar njóta afbragðs starfsréttinda.

 

Nánari upplýsingar um námið má finna á heimasíðunni www.kit.is og er umsóknarfrestur til 5. júní 2018

Fræðslumiðstöðin hlýtur Virðisaukann

Virðisaukinn, hvatningarverðlaun atvinnu- og menningarmálanefndar Ísafjarðarbæjar, voru afhent  Fræðslumiðstöð Vestfjarða á fundi bæjarstjórnar 13. apríl. 
  
Við á Fræðslumiðstöðinni erum ákaflega stolt af viðurkenningunni og heitum því að halda áfram að vinna okkar góða starf fyrir Vestfirðinga. Við þökkum Atvinnu- og menningarmálanefnd Ísafjarðar fyrir þessa miklu upphefð. 
 
 
Samkvæmt rökstuðningi nefndarinnar, kemur fram að markmið Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða sé að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi. Verðlaunin eru ætluð sem hvatning til þeirra sem sýna frumkvæði í málum er lúta að sveitarfélaginu og samborgurum.
 

Rökstuðning nefndarinnar fyrir valinu má sjá hér:

„Viðurkenningu og hvatningarverðlaun Atvinnu- og menningamálanefndar, og þar með farandgripinn Virðisaukann, árið 2017, hlýtur Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Markmið Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi. Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur með námsframboði sínu, nýjum samstarfsamningum við starfsmenntasjóði verkalýðsfélaganna og tengslum við atvinnulífið, m.a. með greiningu fræðsluþarfa hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu, lagt sitt að mörkum til að auka fjölbreytni í atvinnu og menntun í sveitarfélaginu.
Verðlaunin eru ætluð sem hvatning til þeirra sem sýna frumkvæði í málum er lúta að sveitarfélaginu og samborgurunum. Með afhendingu þeirra er einkum tekið mið af framlagi við að auka fjölbreytni í atvinnu, menntun eða afþreyingu, að auka sýnileika bæjarfélagsins á landsvísu, sérstaks árangurs, framtaks á sviði þróunar vöru, þjónustu eða markaðssetningar.“

 

Eldri færslur