Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt

Búið er að auglýsa dagsetningar fyrir næstu íslenskupróf vegna umsókna um íslenskan ríkisborgararétt.  Prófin verða sem hér segir:

  • Akureyri, Símey: Mánudagur 27. maí 2019 13.00
  • Ísafjörður, Fræðslumiðstöð Vestfjarða: Þriðjudagur 28. maí 2019 kl. 13.00
  • Egilstaðir, Austurbrú: Miðvikudagur 29. maí 2019 kl. 13.00
  • Reykjavík, Mímir símenntun, vikan 3.-7. júní kl. 9:00 og kl. 13:00

Skráning hefst mánudaginn 11. mars 2019 á www.mimir.is og lýkur sunnudaginn 12. maí. 

Verð fyrir prófið er 25.000 kr. 
Skráning í próf er ekki gild nema það sé búið að borga.

Upplýsingaöryggi hjá opinberum stofnunum haldið á Ísafirði

Rannsóknasetur um sveitarstjórnarmál í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða kynna:
 Upplýsingaöryggi hjá opinberum stofnunum:
Innleiðing öryggisstefnu, framkvæmd áhættumats og áhættumeðferð 
Námskeið fyrir starfsfólk ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum
 
Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 8. maí frá kl. 9 - 16 í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, ÍsafirðiLágmarksþátttaka er 10 manns á námskeiðið. 
 
Þátttökugjald er kr. 29.500
 
Umsjón og fyrirlesari: Sigurjón Þór Árnason, gæða- og upplýsingaöryggisstjóri hjá Veðurstofu Íslands.
 
Námskeiðið byggir m.a. á hópastarfi og því er ekki boðið upp á fjarnám að þessu sinni.
 

HÉR er hægt að skrá sig á námskeiðið

Eldri færslur