Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Smáskipanámskeið – skipstjórn 12-15 m aukning

Byrjar í janúar 2025

ATH, það er orðið fullbókað í námið
Hægt er að skrá sig á biðlista

Nám­skeiðið er ætlað þeim sem vilja auka atvinnu­rétt­indi sín til að starfa sem skip­stjóri á smá­skipum upp í allt að 15m lengd í strand­sigl­ingum (með að hámarki 12 farþegum og tak­mörkun á farsviði), enda hafi þeir áður öðlast 12m skip­stjórn­ar­skír­teini eða lokið viðurkenndu smá­skipa­skip­stjórn­ar­námi sem í boði var fyrir 1. sept­ember 2020.

Til viðbótar þessu námskeiði þarf að ljúka siglingatíma (þjálfun um borð í skipi) og viðurkenndu öryggisfræðslunámi til þess að fá útgefið skírteini.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Tækniskólann (Skipstjórnarskólann). Námskeiðið er að mestu í fjarnámi en gert er ráð fyrir þremur staðlotum á Ísafirði sem nemendur þurfa að taka þátt í. Einnig þurfa nemendur að fara í verklega þjálfun í siglingahermi.  

  • Kennarar: Hjalti Már Magnússon, Jóhann Bæring Gunnarsson, kennarar frá Tækniskólanum, o.fl
  • Tími: Hefst janúar 2025 og lýkur maí 2025. 
  • Lengd: Nám­skeiðið sam­svarar 7 ein­inga námi í fram­halds­skóla (um fjórðungur úr önn). Því má gera ráð fyrir að um 130-170 klst fari í námið sam­kvæmt viðmiði fyrir fram­halds­skóla­nem­endur.
  • Staður: Fjarkennt, staðlotur á Ísafirði og í hermi í Reykavík.
  • Verð: 200.000 kr.
  • Námsmat: Til að fá prófskírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að standast alla þætti námskeiðsins, hvort sem það eru bókleg próf eða verkleg þjálfun. Meðaleinkunn skal vera í heilum tölum og þarf að lágmarki að vera 7.

Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig hér fyrir neðan. Skráning er ekki bindandi en með henni getur Fræðslumiðstöðin haft samband við viðkomandi og veitt nánari upplýsingar þegar þær liggja fyrir.

Nánar um námskeiðið

Náminu er skipt í nokkra námsþætti sem allir mynda eina heild til þessara réttinda,  m.a. sigl­ing­a­reglur, stöðugleika, sigl­inga­hermi, fjar­skipti (ROC skír­teini) og viðhald vél­búnaðar. Sjá nánar á namsskra.is

Allt kennsluefni, æfingar og lesefni er á kennsluvefnum Innu en nemendur hafa að auki aðgang að samtali við kennara samkvæmt skipulagi. Nemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða sem þeir eru hvattir til að nýta sér.

Skyldumæting er í verklegar staðlotur. Um er að ræða staðlotur fyrir tæki, fjarskipti og vél. 

Nauðsynleg námsgögn

Nemendur þurfa að útvega sér eftirfarandi gögn og m.a. hafa með sér í próf og verklega lotu:

  • Sjókort númer 41 og 365. Sjókort fást hjá Víking björgunarbúnaði, Íshellu 7, 221 Hafnarfirði (eha@viking-life.com).
  • Samsíðung eða siglingafræði-gráðuhorn.
  • Reglustriku, sirkil og almenn ritföng.
  • Reiknivél.
  • Fartölvu (eða spjaldtölvu) til að geta unnið á kennsluvef (Innu).

Sérhæfð námsgögn fást hjá IÐNÚ bókaútgáfu, Brautarholti 8, 105 Reykjavík.

Nánari upplýsingar hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða: frmst@frmst.is

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning