Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Skyndihjálp 4 klst- Patreksfjörður

11. mars 2025

Fjögurra kukkustunda námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla.

Markmið er að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Viðfangsefni:

  • Kynning, hvað er skyndihjálp?
  • Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
  • Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
  • Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
  • Skyndihjálp; stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall.

Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Kennari: Auður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og skyndihjálparkennari.
Lengd: 4 klukkustundir.
Staður: Vatneyrarbúð, Patreksfirði.
Tími: 11. mars kl. 16:30-20:30.
Verð: 14.500. kr.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning