Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Microsoft Teams – Dagleg notkun (fjarkennt)

 21. nóvember 2024

Námskeið ætlað notendum Microsoft Teams sem vilja nýta sér möguleika þess enn betur. Hér er áherslan á hvað gerist innan hvers teymis. Gert er ráð fyrir að þátttakendur þekki Microsoft Teams, viti muninn á teymum og rásum ásamt öðrum almennum skilgreiningum. Góður undirbúningur væri námskeiðið Microsoft Teams grunnur ef um nýja notendur er að ræða.

Microsoft Teams, ásamt öðrum Microsoft 365 (M365) afurðum, hefur verið innleitt hjá fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Frábær lausn til að halda utan um samskipti innan deilda eða sviða, verkefna, deila gögnum, taka fjarfundi, létt spjall (e. chat) og margt fleira.

Microsoft Teams

Á þessu námskeiði er farið yfir daglega notkun Microsoft Teams svo sem uppröðun teyma, festur, síur, bókamerki, skipanir, tengingar við önnur kerfi, uppsetningu lista, samskipti við Outlook póstkerfið, viðbætur og fleira.

Yfirferð:

  • Teams stillingar 
  • Vinnustika notandans
  • Uppröðun teyma
  • Rásir - vinsælast
  • Notkun á virkni
  • Teymin
  • Tengin við póstforritið Outlook
  • Fundir – bókun, rásir og upptökur.
  • Leit
  • Stjórnun teyma
  • Flýtileiðir

Aðrar upplýsingar:
Gott er að hafa aðgang að Microsoft Teams meðan á námskeiðinu stendur frá vinnustöð eða í gegnum vafra.

Kennari: Atli Þór Kristbergsson, ráðgjafi og kennari.
Tími: Kennt fimmtudaginn 21 nóvember kl. 13-16.
Staður: Fjarkennt.
Verð: 23.000 kr.

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Kjölur, Sameyki og Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur geta sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu í boði síns félags. Sama gildir um starfsfólk hjá ríki eða sveitarfélögum sem eru í Verk Vest.

Námskeiðið eru öllum opið og Fræðslumiðstöðin hvetur aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt til endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu félagi.

 

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning