Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Fagnámskeið í starfi með fötluðu fólki

Haust 202

Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa með fötluðu fólki svo sem á heimilum, vinnustöðum eða leik- og grunnskólum. Námið getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda.

Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu,lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.

Námið er ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði, eldri en 20 ára sem hefur stutta formlega skólagöngu að baki.

Meta má námið á móti allt að 16 einingum í framhaldsskóla, ath það er þó alltaf mat viðkomandi skóla. Kennt er skv. námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins - sjá hér.

Tími: Hefst í september 2025 og lýkur vorið 2026. Nánari dagsetningar auglýstar síðar. Kennt mánudaga og miðvikudag kl. 17:00-20:00 auk þess lotur/stofukennsla einn laugardag í mánuði.
Lengd: 164 klukkustundir með leiðbeinenda.
Staður: Fjarkennt í zoom, upptökur úr tímum sem hægt er að horfa eftir á.
Verð: 76.000 kr.
Námsmat: 80% mæting og virk þátttaka.

Vakin er athygli á að með samningi við starfsmenntasjóðina Sveitamennt og Ríkismennt geta stofnanir ríkis og sveitarfélaga boðið því starfsfólk sínu sem er í VerkVest eða Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur að sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Minnum aðra væntanlega þátttakendur á að kanna rétt til endurgreiðslu námskeiðsgjalda hjá sínu stéttarfélagi.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning