Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Vefapp námskeið hjá Fab Lab á Ísafirði (8. - 10. bekk)

Helgarnámskeið í forritun fyrir unglinga í 8. - 10. bekk og eldri verður haldið í FABLAB á Ísafirði frá 8. - 10. apríl næstkomandi haldið á vegum Kóder.is sem eru samtök sem vilja kynna forritun fyrir ungmennum á aldrinum 9-16 ára í sínu hverfi. Skráning fer fram á vef Kóder sjá hér.

Námskeiðsgjöld eru 10.000 kr.

Athugið að námskeiðið verður haldið með fyrirvara um næga þáttöku. Lágmarsþáttaka eru 26 samanlagt fyrir bæði Vefapp námskeiðið og Minecraft námskeiðið. Þær skráningar mega dreifast hvernig sem er milli námskeiða svo lengi sem 26 skráningar nást í heildina.

Ef námskeiðinu verður aflýst verða námskeiðsgjöld endurgreitt að fullu.

 

Á námskeiðinu munu þátttakendur læra:

HTML grunnur

CSS grunnur

Javascript grunnur

Hönnun á einföldu vefappi

 

Tímasetningar:

Föstudagur: 16:00 - 19:00

Laugardagur: 13:00 - 16:00

Sunnudagur: 13:00 - 16:00

Þátttakendur þurfa ekki að eiga eigin tölvu til að taka þátt. Við komum með vinnustöðvar fyrir alla.

Ekki gleyma að deila viðburðinum á Facebook sem mest svo við náum lágmarksþáttöku (sjá hér).

Kóder.is eru hugsjónasamtök sem stefna að því að gera forritun aðgengilega fyrir börn og unglinga úr öllum þjóðfélagsstigum. Með því að kynna forritun fyrir börnum og unglingum er verið að opna þeim nýjar dyr innan tölvuheimsins. Í stað þess að vera einungis neytendur á afþreyingarefni og tölvuleikjum efla þau eigin rökvísi, sköpunargáfu og læra vandamálagreiningu frá unga aldri.

 

 

 

Deila