Sóttvarnarviðmið Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða fylgir sömu reglum og viðmiðum varðandi smitvarnir og gilda um framhaldsskóla og háskóla - sjá Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Meðal þess sem lögð er áhersla á er:
- að setja sem mest af námi í fjarkennslu.
- að á staðkenndum námskeiðum miðist hámarkfjöldi þátttakenda við að hægt sé að tryggja gildandi fjarlægðartakmarkanir hverju sinni.
- að tryggja gott aðgengi að spritti og grímum.
- að hvetja þátttakendur á staðkenndum námskeiðum til að viðhafa persónulegar sóttvarnir, sótthreinsa hendur þegar gengið er inn í námsaðstöðu Fræðslumiðstövarinnar og inn í kennslustofur. Einnig að sótthreinsa alla snertifleti fyrir og eftir notkun.
- að hvetja þátttakendur til að nýta rafræn samskipti (facebook/messenger, tölvupóst og síma).