Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Smáskipanám hefst 21. janúar

Fyrirhugað er að hefja smáskipanám á Ísafirði þriðjudaginn 21. janúar n.k. Smáskipanámskeiðin hafa í gegnum tíðina verið með vinsælustu námskeiðum Fræðslumiðstöðvarinnar og eitt af fáum námskeiðum miðstöðvarinnar þar sem meiri hluti þátttakenda eru karlmenn.

Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008. Námið er kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans.

Smáskipanámið er 115 kennslustundir og lýkur í byrjun maí. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:15-22:15 og laugardögum kl. 9:00-12:00. Kennslan fer fram í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði. Aðal kennari námskeiðsins er Guðbjörn Páll Sölvason.

Náminu lýkur með bóklegu prófi og er prófað úr hverjum námsþætti fyrir sig þegar kennslu í honum lýkur. Nemendur þurfa að lágmarki 5 í einkunn í stöðugleika og siglingafræði og að lágmarki 6 í siglingarreglum til þess að ljúka náminu.

Deila