Ríkisborgarapróf - skráning til 28. október
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eru haldin tvisvar á ári, að vori og hausti (Icelandic tests for applicants for Icelandic citizenship (Icelandic passport)). Á Ísafirði verður hægt að taka próf hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða miðvikudaginn 20. nóvember 2024.
Mímir sér um framkvæmd ríkisborgaraprófa fyrir Menntamálastofnun og tekur við skráningum á heimasíðu sinni mimir.is. Skráningu lýkur mánudaginn 28. október. Ekki er hægt að skrá sig í próf eftir að skráningarfrestur rennur út og skráning er ekki gild nema gengið hafi verið frá greiðslu. Gjald fyrir prófið eru 40.000 kr.
Nánari upplýsingar á vef Mímis mimir.is.