Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Raunfærnimat í skipstjórn

Mánudaginn 28. apríl kl 16:30 verður kynning á raunfærnimati í skipstjórn. Kynningin er í fjarfundi og er hægt að taka þátt í henni á starfsstöðvum Fræðslumiðstöðvarinnar á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði.

Raunfærnimat í skipstjórn er ætlað þeim sem hafa starfað á sjó í 5 ár eða lengur og hafa áhuga á að ná sér í stýrimanns- og skipstjórnarréttindi.  Matið miðar að því að meta þá færni sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Metið er upp í nám í skipstjórn á B stigi (45 m skip). Þátttakendur fara í kjölfarið í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til þess að fá réttindi. 

Deila