Óskum eftir fólki sem vill starfa í notendaráði fatlaðs fólks á Vestfjörðum
Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samvinnu við Byggðarsamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks auglýsir eftir fólki sem vill starfa í notendaráði.
Starf notendaráðs er að taka þátt í stefnumótun í málaflokknum og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks í sveitafélögum á Vestfjörðum.
Notendaráð er eingöngu skipað fötluðu fólki.
Þeim sem vilja taka þátt verður boðið upp á námskeið þar sem þátttakendur eru undirbúnir fyrir setu í notendaráði.
Á námskeiðinu verður farið yfir þætti er varða lög og reglur, mannréttindi, margbreytileika og þjónustu við fatlað fólk.
Umsóknarfrestur er til 10. maí 2019.
Frekari upplýsingar og skráning:
Sólveig Bessa Magnúsdóttir verkefnastjóri námskeiðsins bessa@frmst.is sími /4565025/8498691
Sif Huld Albertsdóttir hjá Byggðarsamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks bsvest@bsvest.is 4503007/8401637