Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Nú er komið að Rússlandi

18. mars 2013

Fimmti fyrirlesturinn í röð um mannauðinn og menningarlega fjölbreytni verður fimmtudaginn 21. mars kl. 17 ? 18 í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði. Þá fjallar Nina Ivanova um Rússland; segir frá landi og þjóð, mannlífi og menningu. Hvað er líkt með Íslendingum og Rússum? Eru hjörtu mannanna kannski allsstaðar eins?

Það eru Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Rætur sem standa saman að þessari röð fyrirlestra sem eru að jafnaði kl. 17 ? 18 þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Markmið með þessari fyrirlestraröð er að kynna fjölbreytileika mannlífsins á Vestfjörðum, gefa sýn á uppruna, menningu og hefðir nokkurra þeirra þjóða sem hér búa og auka þannig skilning og samheldni í samfélaginu. Fyrirlestrunum er einnig ætlað að hjálpa til við að kalla fram möguleika á að nýta þessa fjölbreytni, svo sem í viðskiptum og ferðaþjónustu.

Áður hefur verið fjallað um Filippseyjar og Pólland en Taíland verður umfjöllunarefnið í apríl.

Fyrirlestrarnir eru á íslensku, öllum opnir og ekki er þörf á að skrá sig fyrirfram.

image
Deila