Námsstefna um hjarta- og æðasjúkdóma
Fimmtudaginn 26. mars n.k. kl. 9:00-15:45 stendur Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir námsstefnu um hjarta- og æðasjúkdómar og verður hún einnig í boði í fjarfundi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða ef næg þátttaka fæst. Námsstefnan er einkum ætluð fagfólki á heilbrigðissviði. Þátttökugjald eru 19.900 kr. á mann. Ef fimm eða fleiri þátttakendur koma frá sama greiðanda er veittur 20% afsláttur. Einstaklingar eru hvattir til að kanna möguleika á endurgreiðslu hluta þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi.
Dagskrá námsstefnunnar er eftirfarandi:
Kaffi
Matarhlé
Kaffi
Þar sem lágmarksþátttöku þarf til þess að hægt sé að bjóða upp á námsstefnuna í fjarfundi hjá Fræðslumiðstöðinni er mikilvægt að áhugasamir skrái sig sem fyrst. Tekið er við skráningum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Deila
Dagskrá námsstefnunnar er eftirfarandi:
- 09:00 - 09:10 Námsstefnan sett. Hanna S Ástvaldsdóttir
- 09:10 - 09:35 Hjartað. Hanna S Ásvaldsdóttir Ms. lífeindafr. og perfusionisti á hjarta-og lungnaskurðdeild á LSH.
- 09.35 - 10:00 Rannsóknir til greininga hjartasjúkdóma. Guðrún Reimarsdóttir yfirlífeindafræðingur á hjartarannsókn á LSH
Kaffi
- 10:15 - 10:40 Vefjameinafræði hjartasjúkdóma. Lárus Jónasson, sérfræðingur í vefjameinafræði á LSH
- 10:40 - 11:10 Meingerð og meinþróun æðakölkunar. Guðmundur Þorgeirsson, sérfæðingur á LSH
- 11:10-11-35 . Ragnar Daníelsen, sérfræðingur á LSH
- 11.35-12.00 Kransæðahjáveita. Líney Símonardóttir Ms. lífeindafr. og perfusionisti á hjarta- og lungnaskurðdeild LSH
Matarhlé
- 13:00 -13:30 Þróun kransæðasjúkdóma og áhættuþátta. Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar
- 13:30 -14:00 Myndgreining hjarta- og æðakerfis í hóprannsóknum Hjartaverndar. Sigurður Sigurðarson, geislafræðingur í Hjartavernd
- 14:00 -14:30 Notkun hjartaensíma við mat á áhættu á kransæðasjúkdómi. Ingunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur hjá Hjartavernd
Kaffi
- 14:45 -15:15 Árangur í baráttu við blóðfitur eins helsta áhættuþáttar kransæðasjúkdóms. Bolli Þórsson, innkirtlasérfræðingur hjá Hjartavernd
- 15:15 -15:45 Breytingar í áhættuþáttum og meðferð. Áhrifaþættir til fækkunar á dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma. Thor Aspelund tölfræðingur hjá Hjartavernd
Þar sem lágmarksþátttöku þarf til þess að hægt sé að bjóða upp á námsstefnuna í fjarfundi hjá Fræðslumiðstöðinni er mikilvægt að áhugasamir skrái sig sem fyrst. Tekið er við skráningum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.