Námskeið um uppeldi barna með ADHD
Fræðslumiðstöðin er ekki aðeins með sín eigin námskeið heldur hýsir einnig námskeið fyrir ýmsa samstarfsaðila. Eitt slíkt námskeið sem haldið var í nóvember og desember fjallaði um uppeldi barna með ADHD á vegum Petru Hólmgrímsdóttur, kennara og MSc í sálfræði og Hennýjar Þrastardóttur skólahjúkrunarfræðings. Færri komust að en vildu og því verður boðið upp á annað námskeið í janúar. Allar upplýsingar er að finna hér fyrir neðan en athugið að skráning er ekki hjá Fræðslumiðstöðinni heldur hjá Petru á netfanginu adhdnamskeid@gmail.com
Námskeið um uppeldi barna með ADHD
Markhópur
Foreldrar barna sem hafa hamlandi einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrests (ADHD) samkvæmt formlegri skimun eða fullnaðargreiningu. Efni námskeiðsins hentar best vegna barna á aldrinum 5–12 ára sem ekki hafa margar eða flóknar fylgiraskanir.
Markmið
Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og styðja þá við að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með þessa og tengdar raskanir. Foreldrar eru studdir til að skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.
Fyrirkomulag
Hvert námskeið er 12 klukkustundir sem skiptist í 6 skipti, 2 klst. í senn. Fyrstu 5 skiptin eru vikulega, þá kemur ein vika án námskeiðstíma og síðasti tíminn er í 7. viku námskeiðs. Í hverjum tíma veita leiðbeinendur fræðslu um ákveðin grundvallaratriði, studd af námskeiðsgögnum. Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Í upphafi og við lok námskeiðs eru foreldrar beðnir að fylla út matslista. Milli tíma þarf að vinna heimaverkefni sem rædd eru í næsta skipti og ráðgjöf er gefin um framhaldið.
ATH. Þar sem hver áfangi námskeiðsins byggir á því sem á undan er gengið er mikilvægt að gera ráðstafanir til að geta mætt í alla tímana. Mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.
Leiðbeinendur
Leiðbeinendur eru Petra Hólmgrímsdóttir og Henný Þrastardóttir, fagaðilar sem eru sérfróðir um ADHD og skyldar raskanir og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.
Yfirlit innihalds
Tími 1 Einkenni og áhrif ADHD á hegðun barna og samspil þessa við umhverfið. Orsakir óhlýðni og þróun samskipta í fjölskyldum. Grunnatriði atferlismótunar.
Tími 2 Uppeldisfærni og bjargráð foreldra, lykilatriði í uppeldi barna með ADHD, að veita æskilegri hegðun athygli og nota jákvæða athygli markvisst til kennslu.
Tími 3 Daglegt skipulag, rammi, rútína og reglur. Að gefa skýr fyrirmæli og ýta undir hlýðni, góða hegðun, sjálfstæði og sjálfsaga.
Tími 4 Kynning á mismunandi umbunarkerfum; notkun, fyrirkomulag og framkvæmd. Val markhegðunar og umbunar.
Tími 5 Viðurlög við óæskilegri hegðun, mismunandi leiðir. Að taka á hegðun utan heimilis, sjá fyrir mögulega erfiðleika og skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð.
Tími 6 Skipulag til framtíðar, hvað á að gera ef hegðun barns versnar, þarf einhverju að breyta í núverandi aðgerðum? Niðurstöður matslista, ráðgjöf, endurgjöf og útskrift.
Tími og skráning
Námskeiðið verður haldið á miðvikudagskvöldum frá 19:30 – 21:30 í húsi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða Suðurgötu 12. Upplýsingar og bókanir á námskeiðið er á adhdnamskeid@gmail.com
Verð: 20.000- fyrir par/hjón og 15.000- fyrir einstaklinginn. Námskeiðið ber að greiða fyrirfram og fást upplýsingar um greiðslufyrirkomulag á adhdnamskeid@gmail.com
Fyrsti tími verður 17. janúar, og verða næstu tímar þá 14.1., 31.1., 7.2., 14.2. og síðasti tíminn verður tveimur vikum síðar eða þann 28. febrúar.