Námskeið í skyndihjálp
Kunnátta í skyndihjálp hefur margsannað gildi sitt og bjargað ófáum mannslífum.
Dagana 26. og 27. maí stendur Rauði krossinn á Ísafirði fyrir námskeiði í skyndihjálp fyrir almenning í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
Kennt verður í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 á Ísafirði og stendur námskeiðið frá 17 til 21 hvorn dag. Kennari er Auður Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og skyndihjálparleiðbeinandi. Verð fyrir námskeiðið er 6.500 kr.
Skráning á námskeiðið er hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025 eða með því að smella hér.