Námskeið í apríl
Það er ýmislegt á döfinni hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða næstu vikurnar og viljum við endilega hvetja fólk til þess að skoða það sem miðstöðin hefur fram að færa. Næstu námskeið eru:
- Íslenska fyrir útlendinga stig 3a. Hefst 11. apríl.
- iPad og iPhone. Hefst 11. apríl.
- Hraðlestur. Fjarkennt námskeið. Hefst 11. apríl.
- Samskiptaræktin. Hefst 12. apríl.
- Núvitund. Haldið 12. apríl.
- Þriðja skeiðið - réttindi og tækifæri - Þjónusta sveitarfélaga. Haldið 14. apríl.
- Raki og mygla í húsum II. Haldið 14. apríl.
- Þetta er landið okkar - leiðsögutækni. Hefst 18. apríl.
- Um fjöll og firnindi - gönguleiðsögn. Hefst 25. apríl.
- Skyndihjálp - kennt á ensku. Hefst 25. apríl.
- Kvíði barna og unglinga – fjarnámskeið. Námskeið frá Endurmenntun HÍ. Haldið 29. apríl.
Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um að lágmarks þátttaka fáist.
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Skráningarfrestur á námskeið er yfirleitt 3-7 virkir dagar áður en á námskeið á að hefjast.
Allar frekari upplýsingar og skráning í síma: 456-5025 og á vef Fræðslumiðstöðvar www.frmst.is. Athugið að upplýsingar og skráning á fjarkenndu námskeiðin, Hraðlestur og Kvíði barna og unglinga er hjá viðkomandi námskeiðshöldurum. Hraðlestur er frá Hraðlestrarskólanum í samstarfi Námsflokka Hafnarfjarðar og Kvíði barna og unglinga er frá Endurmenntun HÍ.