Námskeið Rauða krossins fyrir börnin.
Unga fólkið heimsótti Fræðslumiðstöðina í dag, en þar var á ferð stór hópur sem sækir námskeið hjá Rauða krossinum sem nefnist Mannúð og menning / Gleðidagar í Barnaskólanum í Hnífsdal.
Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 6-9 ára og er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni. Börnin fá einnig innsýn í skyndihjálp, fjölmenningu og umhverfisvernd. Eldri borgarar koma í heimsókn og farið verður í útileiki og vettvangsferðir.
Gaman er að fá svona flottan hóp í heimsókn. Þau fengu að skoða sig um í Fræðslumiðstöðinni og Rauða krossinum og síðan horfðu þau á myndband um slysavarnir.