Náms- og starfsráðgjafi á Ströndum, Reykhólum og Suðursvæðinu
Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður á Hólmavík, Reykhólum og sunnanverðum Vestfjörðum dagana 4. - 6. september n.k. (fimmtudag til laugardags).
Björn mun heimsækja vinnustaði og vera með einstaklingsviðtöl.
Einstaklingsviðtölin eru tilvalin fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína og möguleika, svo sem;
- Fá upplýsingar um nám.
- Fá upplýsingar um styrki til náms.
- Setja sér markmið í námi og starfi.
- Kanna færni sína í starfi og fá upplýsingar um raunfærnimat.
- Taka áhugasviðspróf.
- Rækta sjálfan sig.
Ráðgjöfin er fólki að kostnaðarlausu.
Gríptu tækifærið og skráðu þig hjá Birni í síma 899 0883, eða hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025 eða með tölvupósti smari@frmst.is