Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Landnemaskólinn á Patreksfirði.

1 af 2

Kennsla í Landnemaskóla 1 er að hefjast á Patreksfirði. Landnemaskólinn er 120 kennslustunda nám ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði, sem ekki á íslensku að móðurmáli. Auk þess að styrkja íslenskukunnáttu á skólinn að auðvelda fólki lífið í íslensku samfélagi. Kennt verður í Selinu að Sigtúni 21 á Patreksfirði, síðdegis á mánudögum til fimmtudaga. Landnemaskólinn er ein af vottuðum námsleiðum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Heimilt er að meta skólann til 10 eininga í framhaldsskólum. 

Kennari verður Anna Benkovic framhaldsskólakennari.

Sjá ummæli námsmanna um Landnemaskólann.
Sjá kynningu á Youtube.
For information in English.
Więcej informacji na temat polskich.

Nánari lýsing og skráning er hér.

Deila