Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Kynning á Landnemaskóla II og íslensku 3

Suðurgata 12 á Ísafirði
Suðurgata 12 á Ísafirði

Mánudaginn 29. september kl. 18, verður kynning á Landnemaskóla 2 og íslensku fyrir þá sem hafa lokið íslensku 1 og 2.

Kynningin verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði.

Landnemaskóli II er 120 kennslustundir og ætlaður þeim sem eru eldri en 20 ára, af erlendum uppruna og hafa lokið Landnemaskóla I.

Kenndar verða 60 stundir á haustönn 2014 og 60 stundir á vorönn 2015.

Verð: 11.500 kr. á þátttakenda á hvorri önn.

Námsþættir:

Námsþættir

Kest

Kynning

2

Atvinnulífið, réttindi og skyldur

12

Frumkvöðlafræði

12

Heilsa og heilbrigði

4

Íslenska

50

Lífsleikni og tjáning

10

Menning og samfélag

20

Náms- og starfráðgjöf

8

Mat á námi og námsleiðum

2

Samtals

120

Sjá nánari lýsingu á Landnemaskóla II hér

Skráning er hér

Íslenskan er kennd samkvæmt námsskrá mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem náminu er skipt í 60 kennslustunda áfanga. Þeir sem hafa lokið 1. og 2. áfanganum og vilja læra meira eiga erindi á kynningarfundinn.

Deila