Íslenskan blómstrar! Aldrei verið meiri eftirspurn eftir íslenskunámskeiðum
Á vorin er yfir mörgu að gleðjast og eitt af því sem gleður okkur sérstaklega í Fræðslumiðstöðinni er að sjaldan virðist hafa verið vinsælla að læra íslensku ef marka má aðsóknina að íslenskunámskeiðum um þessar mundir. Námskeiðin hafa aldrei verið fleiri og flest þeirra mjög vel sótt. Á síðasta ári tóku 370 nemendur þátt íslenskunámskeiðum og miðað við þátttöku á þessari önn stefnir í að þeir verði töluvert fleiri í ár.
Verkefnið Gefum íslensku séns, sem heyrir nú undir Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur án efa átt stóran þátt í að efla þátttöku og áhuga fólks á að læra málið og skapað aðstæður og tækifæri fyrir fólk að æfa sig í umhverfi þar sem má ruglast, byrja aftur, þiggja aðstoð og rétta öðrum hjálparhönd. Verkefnið er farið að teygja anga sína víða og viðburðir eru nú á dagskrá á Ísafirði, Þingeyri, Flateyri, Bolungarvík, Súðavík, Hólmavík og Patreksfirði.
Gefum íslensku séns hefur verið að fjölga viðburðum og nú í apríl fór fram leiklestur á íslensku verki með leikaranum Elfari Loga Hannessyni frá Kómedíuleikhúsinu þar sem hópurinn hittist í þrjú skipti og las saman leikritið Skjaldhamra eftir Jónas Árnason. Nýjasta viðbótin í viðburðarflóru Gefum íslensku séns er bókaklúbbur. Til stendur að lesa bókina Hildi eftir Satu Ramö og hittast síðan og ræða um bókina í tvö skipti. Þá mun rithöfundurinn sjálfur heimsækja okkur og spjalla við hópinn. En eins og margir vita er hún búsett á Ísafirði og nýverið var hér stórt og mikið lið leikara og fagfólks í þátta- og kvikmyndagerð við upptökur og vinnslu á sjónvarpsþáttum um lögreglukonuna Hildi.
Þessi aukni áhugi á íslensku er mikið gleðiefni og við í Fræðslumiðstöðinni erum stolt af því að geta boðið upp á íslenskunám á ýmsum getustigum og á ýmsu formi bæði hefðbundin námskeið og alls konar viðburði þar sem hægt er að æfa málið á annan hátt.
Við hvetjum öll þau sem hafa áhuga á að læra íslensku eða bæta við sig að fylgjast vel með, ný námskeið og viðburðir bætast reglulega við og gott að skrá sig tímanlega.
Gleðilega páska! Fræðslumiðstöð Vestfjarða