Á döfinni
Það er ýmislegt á döfinni hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða núna eftir páskana, tómstundir, tölvur, sjálfsefling og námskeið sem geta nýst í starfi.
Hugræn atferlismeðferð (HAM). Hefst 4. apríl.
Excel - morgunnámskeið. Hefst 5. apríl.
Útsaumur. Haldið 6. apríl.
Spænska - talmál. Hefst 6. apríl.
iPad og iPhone. Hefst 11. apríl.
Samskiptaræktin. Hefst 12. apríl.
Raki og mygla í húsum II. Haldið 14. apríl.
Fleiri námskeið eru væntanleg, svo sem nokkur námskeið fyrir fólk í ferðaþjónustu, vinnustofa um núvitund, fyrirlestur í fyrirlestraröðinni um þriðja skeiðið og skyndihjálparnámskeið kennt á ensku.
Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um að lágmarks þátttaka fáist.
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Skráningarfrestur á námskeið er yfirleitt 3-7 virkir dagar áður en á námskeið á að hefjast.
Allar frekari upplýsingar og skráning í síma: 456-5025 og á vef Fræðslumiðstöðvar www.frmst.is.