Raunfærni í fiskeldi
Raunfærnimat í fiskeldi/fisktækni er mat á færni þinni og þekkingu í sjávarútvegstengdum greinum. Lagt er mat á reynslu þína í samtali og hún metin jafngildis áföngum í náminu.
Markmið
· að geta stytt nám í framhaldinu
· að sýna fram á reynslu og færni í starfi / í atvinnuumsókn
· að leggja mat á hvernig einstaklingur getur styrkt sig í námi / starfi
Eftir matið getur þú tekið ákvörðun um að:
· klára það sem vantar upp á til að ljúka námi
· nýta matið sem stökkpall í annað nám
· nýta matið til að skoða hvar þú ert staddur/stödd