Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf
Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp á náms- og starfsráðgjöf. Þjónusta náms- og starfsráðgjafa felst m.a í eftirfarandi:
- Upplýsingagjöf um nám og störf
- Aðstoð við að greina áhugasvið og hæfni einstaklinga
- Upplýsingagjöf um raunfærnimat og stuðning í matsviðtölum
- Hvatningu og leiðbeiningum við markmiðssetningu og gerð námsáætlunar
- Að hjálpa fólki við að tileinka sér hentug vinnubrögð í námi og finna sinn eigin námsstíl
- Aðstoð við að útbúa ferilskrá, umsóknar- og kynningarbréf
- Persónulegri ráðgjöf
Í persónulegri ráðgjöf veitist fólki tækifæri til að setjast niður með hlutlausum aðila og skoða stöðu sína almennt. Viðtal við náms- og starfsráðgjafa er þeim sem ekki hafa lokið framhaldsskóla að kostnaðarlausu.
Viðtölin fara fram í aðsetri Fræðslumiðstöðvarinnar á Suðurgötu 12 (Vestrahúsið). Einnig er í boði rafræn ráðgjöf eða í síma. Fyrirtæki á Vestfjörðum geta fengið kynningu til sín og einnig pantað einstaklingsviðtöl fyrir sitt starfsfólk.
Áhugasamir getað pantað viðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa alla virka daga með því að hafa samband við Fræðslumiðstöðina með tölvupósti: helga@frmst.is eða í síma 571 5056.
Náms- og starfsráðgjafi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er Helga Konráðsdóttir. Helga er kennari með meistarapróf í náms- og starfsráðgjöf. Hún er með áralanga reynslu í einstaklings- og hópviðtölum. Einnig hefur hún haldið námskeið og verið með náms- og starfsfræðslu fyrir skóla, fyrirtæki og atvinnuleitendur.