Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Fræðsla í formi og lit

Haust 2024

Markmið námsins er meðal annars að veita einstaklingum tækifæri til að styrkja færni sína í myndlist, listasögu og skapandi starfi í þeim tilgangi að stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms á sviði lista, auðvelda þeim að örva og nýta skapandi hæfileika sína og koma auga á ný tækifæri í framtíðinni.

Námið er einkum ætlað fólk sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi og hefur það fólk forgang. Öðrum er þó velkomið að sækja um. 

Námið er kjörið fyrir þau sem hafa áhuga á skapandi starfi, hugmyndavinnu, myndgerð, framsetningu myndlistar og myndlistarsögu. Það hentar þeim sem vilja nýta námið til að styrkja stöðu á vinnumarkaði í fjölbreyttum atvinnugreinum list- og verkgreina sem og þeim sem vilja nýta það sem grunn að áframhaldandi námi.

Námið er kennt skv. námskrá Fræðslumiðtöðvar atvinnulífisins - sjá hér. Í heild er námið rúmar 400 klukkustundir sem skiptist í tíma með kennara og heimanám/vinnu sjálfstætt. Kennsla hefst í desember 2023 og lýkur haustið 2024.

Meðal námsþátta eru:

  • Teikning
  • Lita- og formfræði
  • Hlutföll í mannslíkamanum
  • Saga myndlistar

Námið er kennt í góðri samvinnu við ýmsa kennara og myndlistafólk á svæðinu. 

Kennarar: Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Gunnar Jónsson, Jelena Micic Johannsson, Sólveig Edda Vilhjálmsdóttir o.fl.
Tími: Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17-21. Hefst þegar næg þátttaka fæst.
Staður: Kennt verður ýmist í Fræðslumiðstöð Vestfjarða eða Edinborgarhúsinu.
Verð: 89.000 kr. 
Námsmat: 80% mæting og virk þátttaka.

Minnum á að hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga. 

Auglýst með fyrirvara um að næg þátttaka fáist.

 

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning