Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Stóra myndin í heilbrigðismálum – Erindi frá SÍBS

Fimmtudaginn 11. maí n.k. mun Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, ræða "Stóru myndina í heilbrigðismálum" í Fræðslumiðstöð Vestfjarða. 

Sjúkdómsbyrði Íslendinga má jafna við að ár hvert glatist af hennar völdum fimmtungur landsframleiðslunnar. Í fyrirlestrinum er notast við gögn frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni um „glötuð góð æviár“ vegna sjúkdóms og dauða, og eru gögnin skoðuð á grafískan og gagnvirkan hátt sem gefur afar góða heildarsýn á sjúkdómsbyrðina og ríkuleg tækifæri til umræðu.

Guðmundur mun í kjölfarið ræða og svara spurningum um erindið og forvarnarststarf SÍBS.

Erindið verður í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði kl. 12-13 og í fjarfundi í Þekkingarsetrinu Skor í Patreksfirði. Jafnframt munum við leitast við að streyma honum á Facebook síðu SÍBS fyrir aðra staði.

Allir velkomnir.

Nánari upplýsingar á vef SÍBS

Deila